vá góða helgi! byrjaði á hörku leik ír-selfoss á föstudaginn þar sem AK sýndi hvað hann getur. Selfoss vann góðan sigur á lokamínutunum. til hamingju með sigurinn Atli.
laugardagurinn var rosalegur þar sem við byrjuðum á að halda uppá kreppuna með geðveikri steik á Hereford, ég kiddi lofts, Atli k, Atli Rúnar, Gummi, Sæþór og Hjalli átum á okkur gat. ég er ennþá með slef útá kinn! eftir það var farið á Sólheimana í póker þar sem kiddi karel og frissi bættust í hópinn, hann endaði með glæsilegum sigri hjá undirrituðum. sem betur fer annars hefði steikin sett mig á hausinn
eins og sannir selfyssingar var farið á skítamóral á nasa þar sem við hristum okkur duglega og hittum ALLAN selfossbæ, ásamt auðvitað nýjasta krabbameini hópsins. til hamingju með það líka Atli minn..
ég ákvað svo að bregða mér á sigurrósartónleika með Frissa mínum til að slá botnin í þetta og þeir voru svakalega góðir.
Vill bara þakka ykkur fyrir magnaða helgi strákar, þetta klikkaði ekki frekar en fyrri daginn
kv Guðni